| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-2314-0000-273-A-A-0001-01 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Hólamenn () |
| Heiti 3.1.2: | Skjöl Guðbrands biskups Þorlákssonar:
Bréf Staðarhóls-Páls til Guðbrands biskups 1593. - Afrit frá 18. eða 19 öld.
Testament Guðbrands biskups frá 1587. - Afrit m.h. Daða Níelssonar frá ca. 1840 - 185 ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Skjöl Guðbrands biskups Þorlákssonar:
Bréf Staðarhóls-Páls til Guðbrands biskups 1593. - Afrit frá 18. eða 19 öld.
Testament Guðbrands biskups frá 1587. - Afrit m.h. Daða Níelssonar frá ca. 1840 - 1850. Einnig afrit dr. Jóns Þorkelssonar, dags. 15. júní 1904.
Testament Guðbrands biskups, dags. 12. sept. 1611 og undirritað 14. des. 1612. - Frumrit.
Brot úr skjali frá Guðbrandi biskupi til konungs um jarðir Hóladómkirkju, ca. 1617. - Úr bandi á Guðspjallabók, Hólum 1617.
Skjöl Þorláks biskups Skúlasonar:
Bréf til Þorláks biskups, og eru þessir bréfritarar:
Bjarni Gíslason, prestur, Garði 1 bréf ca. 1630.
Gunnlaugur Grímsson 1 " 1635.
Bréfið er skrifað í Gilhaga.
Hallgrímur Jónsson, prestur, Glaumbæ 1 bréf 1635.
Illugi Björnsson, prestur, Húsavík 1 " 1637 eða
síðar. Oddur Einarsson, biskup 1 " 1629.
Nokkur sundurlaus bréfabrot til Þorláks biskups, líklega frá því um 1635 og þar um kring.
Úr bandi á Antiphonario Hollensi, komnu 7. nóv.
1921 frá sr. Bjarna Þorsteinssyni á Siglufirði.
Latínubréf Þorláks biskups til sr. Páls Björnssonar í Selárdal, dags. 28. okt. 1644. Einnig upphaf að bréfi Þorláks biskups til Brynjólfs biskups Sveinssonar. - E.t.v. er þetta brot úr latneskri bréfabók Þorláks biskups. Úr Presbyterologia, Bps. 67, fol.
Próventubréf Hallgríms Guðmundssonar og konu hans, Halldóru
Pétursdóttur, til Þorláks biskups, dags. 9. jan. 1639. - Frumrit.
Próventubréf Guðrúnar Tómasdóttur til Þorláks biskups, dags. 22. ágúst 1648. - Frumrit.
Próventubréf Sæmundar Filippussonar til Þorláks biskups, dags. 18. febr. 1653. - Frumrit.
Skipti á jarðeignum Þorláks biskups milli erfingja hans, gerð að Hólum í Hjaltadal 29. apríl 1656. - Frumrit.
Skipti á föstu og lausu eftir Þorlák biskup milli erfingja hans, gerð að Hólum í Hjaltadal 18. júlí 1657. - Samtíma afrit.
Skjöl Gísla biskups Þorlákssonar:
Bréf ónefnds háskólakennara í Khöfn til Gísla biskups frá ca. 1663. - Bréfið er á dönsku, mest um tíðindi í Evrópu. Vantar niðurlagið.
Bréf prófasts og presta í Þingeyjarsýslu, þar sem þeir velja Gísla Þorláksson til biskups á Hólum eftir föður sinn, dags. að Múla í Aðalreykjadal 11. febr. 1656. - Frumrit.
Reikningsskil Gísla biskups við Hólakirkju 19. nóv. 1657.
Beiðni Gísla biskups til konungs, að hann megi ganga að eiga Ingibjörgu Benediktsdóttur sýslumanns Halldórssonar.
Umboð frá prestum í Eyjafirði til handa Gísla biskupi til að sverja Kristjáni 5. hollustueiða, dags. að Hrafnagili 13. júní 1670.
Umboð frá 18 prestum Hólastiftis til handa Gísla biskupi til að sverja
Kristjáni 5. hollustueiða, dags. að Helgastöðum í Reykjadal 15. júní 1670.
Andsvör Gísla biskups gegn ákærum Jóns Eggertssonar 1680. - Frumrit.
Með fylgir ágrip af kæruatriðum Jóns Eggerts-sonar til konungs 1684. Á dönsku.
Tvær spurningar Gísla biskups til kennimanna sinna (1683?):
1. Um framfærslu sr. Konráðs Þórðarsonar.
2. Um aflausn og sakramentis meðtekningu kvenpersóna er þá feður að börnum sínum lýst hafa, sem með eiði hafa færst undan því. Með fylgja svör kennimanna.
Spurning biskups ti |
| Spurning biskups til landfógeta um stólsjörðina Saltvík, er konungur hafði selt hollenskum brennisteinsmönnum.
Með fylgir svar fógeta í uppkasti.
Skjöl Ragnheiðar Jónsdóttur, konu Gísla biskups Þorlákssonar:
Bréf til Ragnheiðar Jónsdóttur, líklega frá sr. Ara Guðmunds-syni á Mælifelli, 1684 eða 1685.
Tvö bréf frá Páli Vídalín lögmanni til Ragnheiðar Jónsdóttur, dags. 7. okt. 1705, hitt bréfið er ótímasett og vantar niðurlagið.
Jón biskup Vigfússon kvittar Ragnheiði Jónsdóttur, ekkju Gísla biskups Þorlákssonar, um bækur og bréf Hólabiskupsdæmis, dags. 26. mars 1685.
Úrskurður prestastefnu á Flugumýri í Skagafirði um náðarár Ragnheiðar Jónsdóttur biskupsekkju, dags. 5. sept. 1684.
Vitnisburður Ragnheiðar biskupsekkju Jónsdóttur um Sigfús Þórðarson Hóla-og Skálholtsráðsmann, gefinn út að Gröf á Höfðaströnd 29. sept. 1698. -
Aftan á skjalinu er rissuð skrá um tilskipanir (forordninger) 1744-78.
Vitnisburður um viðskipti þeirra Ragnheiðar Jónsdóttur biskupsekkju og mága hennar við Jón biskup Vigfússon. Vitnisburðurinn er gefinn út á Hólum í Hjaltadal 26. maí 1685, og undir hann rita lögréttumennirnir Oddur Jónsson, Ólafur Magnússon, Oddur Magnússon, Skúli Ólafsson, Jón Illugason og Jón Jónsson. - Frumrit. Þessi vitnisburður var lesinn upp á Alþingi 5. júlí 1687.
Tveir vitnisburðir um viðskipti þeirra Ragnheiðar Jónsdóttur biskupsekkju og Jóns biskups Vigfússonar:
1. Vitnisburður heimamanna Ragnheiðar, útgefinn að Gröf á Höfðaströnd 12. júní 1685. Þeir eru: Þorsteinn Gunnarsson, Þorlákur Grímsson, Styr Þorvaldsson, Egill Sigfússon, Ólafur Ásmundsson, Helga Halldórsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Arnleif Grímsdóttir, Þórdís Þorláksdóttir, Rósa Þorsteinsdóttir og Þuríður Guðbrandsdóttir. - Frumrit.
2. Vitnisburður Þórðar Kolbeinssonar um sama efni, útgefinn að Hólum í Hjaltadal 3. ágúst 1685. - Frumrit.
Umsókn Ragnheiðar Jónsdóttur biskupsekkju til Christians Müllers
amtmanns um linun á álögum á jarðir Hólastóls í Húnaþingi, er hún hafði að léni, dags. að Gröf á Höfðaströnd 28. ágúst 1689. Áritaður er úrskurður amtmanns. - Frumrit.
Önnur skjöl:
Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur um umsjón með góssi Hóladómkirkju, dags. 29. ágúst 1625. - Eiginhandar undirskrift.
Erfðaskrá Margrétar Jónsdóttur, er var kona Gísla lögmanns Hákonarsonar og tengdamóðir Þorláks biskups Skúlasonar, gerð að Hlíðarenda 8. júlí 1657.
Virðing á tinkrúsum Hólastóls 15. febr. 1669. - Frumrit.
Um flutning brotinna kirkjuklukkna frá Hólum í Hjaltadal til Skagastrandar, dags. 8. sept. 1684. - Frumrit.
Rannsóknargerð 3.-4. júlí 1685 á Alþingi um kærur presta Hólabiskupsdæmis gegn Jóni biskupi Vigfússyni.
Legat Þorláks biskups Skúlasonar:
Bréf um legat Þorláks biskups, upplesið í lögréttu á Öxárþingi 1. júlí 1663. - Skrifað eftir Alþingisbókinni í Skálholti 7. sept. 1731. Einnig þýðing á dönsku.
Bréf Steins biskups Jónssonar til Brynjólfs Þórðarsonar á Hlíðarenda um Jón stúdent Sigurðsson, dags. að Hólum í Hjaltadal 27. sept. 1729. - Afrit.
Bréf frá Erlendi stúdent Ólafssyni til Henriks Ocksens st |
| 8. maí 1731. - Afrit.
Bréf frá Erlendi stúdent Ólafssyni til Steins biskups Jónssonar, dags. 8. maí 1731. - Afrit.
Bréf Henriks Ocksens stiftamtmanns til Lafrentz amtmanns varðandi Gunnar stúdent Pálsson, dags. 29. júní 1741. - Frumrit. |
| Tímabil 3.1.3: | á milli 1612 og 1741 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Einkaskjalasafn nr. 1 |
Ítarupplýsingar |
| Saga skjalamyndara 3.2.2: | Sjá í skjali um skjalamyndara |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711439 |
| |