| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-2299-0000-273-A-A-0001-01 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Hannes Finnsson (1739-1796) biskup () |
| Heiti 3.1.2: | Bréf til Hannesar Finnssonar - bréfritari:
Jón Stefánsson, prestur, Vallanesi, 1787.
Önnur skjöl:
Skólavitnisburður Bjarna Jónssonar rektors um Hannes Finnsson að námi loknu í Skálholtsskóla árið 1755 ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Bréf til Hannesar Finnssonar - bréfritari:
Jón Stefánsson, prestur, Vallanesi, 1787.
Önnur skjöl:
Skólavitnisburður Bjarna Jónssonar rektors um Hannes Finnsson að námi loknu í Skálholtsskóla árið 1755.
Vitnisburður um guðfræðipróf Hannesar Finnssonar, gefið út af háskólaráði Khafnarháskóla 22. júní 1763.
Halldór Finnsson dómkirkjuprestur í Skálholti staðfestir, að Hannes Finnsson hafi lifað kristilegu lífi og meðtekið sakramentið, dags. 10. sept. 1770.
Kallsbréf Hannesar Finnssonar til að vera dómkirkjuprestur í Skálholti og
stiftprófastur í Skálholtsbiskupsdæmi, dags. 13. okt. 1775.
Vitnisburður Ludvigs Harboes biskups um kunnáttu og hæfni Hannesar Finnssonar til að gegna biskupsstörfum í Skálholtsbiskupsdæmi, dags. 22.
mars 1776.
Hannes Finnsson skipaður aðstoðarmaður föður síns og væntanlegur eftirmaður á biskupsstóli í Skálholti, dags. 12. mars 1777.
Vígslubréf Hannesar Finnssonar, dags. 3. apríl 1780.
Hið ísl. lærdómslistafélag gerir Hannes Finnsson að "yfirorðulim", dags. 30. maí 1783.
Hannes Finnsson gerður að félaga í Societas antiquariorum Londini, dags. 9.jan. 1789.
Vegabréf Hannesar Finnssonar til Borgundarhólms, dags. 20. júní 1771.
Konungsbréf um launagreiðslur til Hannesar Finnssonar sem ritara
Árnanefndar, dags. 24. febr. 1774, 13. okt. 1775 og 15. maí 1777.
Uppskrift og virðing á gjafarfé sr. Þorvarðs Auðunarsonar í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til Hannesar Finnssonar, dags. 19. júní 1775.
Finnur biskup Jónsson fær Hannesi syni sínum í hendur umsjón með fjárhag biskupsstólsins, visitatíur kirkna, sum umboðin o.fl., dags. 25. júní 1779.
Hjúskaparleyfi Hannesar Finnssonar og Þórunnar Ólafsdóttur, dags. 7. apríl 1780.
Hjúskaparleyfi Hannesar Finnssonar og Valgerðar Jónsdóttur, dags. 24. apríl 1789.
Finnur biskup Jónsson viðurkennir, að hann hafi ekki getað greitt börnum sínum móðurarf þeirra, en gerir grein fyrir jarðeignum þeirra, afrakstri af
þeim og öðrum fjármunum, sem hann varðveiti fyrir þau, dags. 12. ágúst 1776.
Erfðaskrá Finns biskups Jónssonar, þar sem hann skiptir löndum og lausum aurum milli barna sinna, dags. 1. jan. 1784.
Uppskrift, virðing og skipti á dánarbúi Finns biskups Jónssonar, dags. 21. júní 1790.
Uppskrift, virðing og skipti á dánarbúi Hannesar biskups Finnssonar ásamt bréfum og skjölum, sem skiptin varða, dags. 21. ágúst 1801.
Skipti eftir Sigríði Þorsteinsdóttur á Móeiðarhvoli, tengdamóður Hannesar Finnssonar, dags. 18. sept. 1824.
Uppskrift, virðing og skipti á dánarbúi Steingríms biskups Jónssonar, dags. 28. sept. 1846.
Uppskrift, virðing og skipti á dánarbúi Valgerðar Jónsdóttur biskupsekkju, dags. 21. sept. 1857.
Kaupmáli Hannesar Finnssonar og Þórunnar Ólafsdóttur, gerður 28. júní 1780 að Sviðholti. - Geymdur í sérstakri möppu. |
| Tímabil 3.1.3: | á milli 1755 og 1857 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Einkaskjalasafn nr. 210 |
Ítarupplýsingar |
| Saga skjalamyndara 3.2.2: | Sjá í skjali um skjalamyndara |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711423 |
| |