| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-2284-0000-273-A-A-0001-01 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Gunnar Björnsson (-1672) prestur () |
| Heiti 3.1.2: | Vitnisburður Vigfúsar Árnasonar (síðar prests á Hofi í Vopnafirði) og Hallgríms Jónssonar (síðar prests í Glaumbæ), gefinn Gunnari Björnssyni í Khöfn 24. júní 1628 (frumrit).
Vitnisburðarbréf Gunnars ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Vitnisburður Vigfúsar Árnasonar (síðar prests á Hofi í Vopnafirði) og Hallgríms Jónssonar (síðar prests í Glaumbæ), gefinn Gunnari Björnssyni í Khöfn 24. júní 1628 (frumrit).
Vitnisburðarbréf Gunnars Björnssonar (á latínu), útgefið af Ole Worm í Khöfn 16. maí 1629 (frumrit á pappír með ásettu innsigli).
Vottorð rektors Khafnarháskóla um Gunnar Björnsson, dags. 17. maí 1629 (afrit dr. Jóns Þorkelssonar eftir A.M. 703, 4to).
Vitnisburður Sigfúsar Egilssonar (síðar rektors á Hólum) um hegðun Gunnars Björnssonar, meðan þeir "til samans voru í Kaupinhafn", dags. 4. sept. 1630 (frumrit).
Höskuldsstaða sóknarmenn kjósa sr. Gunnar Björnsson til sóknarprests síns, dags. 3.-5. nóv. 1630 (frumrit).
Vígslu- og veitingarbréf Gunnars Björnssonar sem prests að Höskuldsstöðum, útgefið af Þorláki biskupi Skúlasyni 13. apríl 1631 (frumrit).
Þorlákur biskup Skúlason skipar sr. Gunnari Björnssyni Hofskirkjusókn á Höfðaströnd 16. apríl 1632 (frumrit á pappír með ásettu innsigli).
Meðmælabréf Þorláks biskups Skúlasonar með sr. Gunnari Björnssyni til Höskuldsstaða sóknarmanna, dags. 10. maí 1640 (frumrit).
Vitnisburður sr. Gunnars Björnssonar, útgefinn af Höskulds- staða sóknarmönnum 31. mars 1646 (frumrit).
Powell Herlöff Christensen kvittar sr. Þorberg Ásmundsson um 24 rd., er hann hafi afhent sér til handa hinu íslenska verslunarfélagi fyrir inventarium Vesturhópshólakirkju, dags. 21. júlí 1652 (samtíða afskrift á dönsku).
Gísli biskup Þorláksson kvittar sr. Gunnar Björnsson um portio Höskuldsstaðakirkju 1659 og 1664 (frumrit á pappír).
Eiður Guðríðar Gunnarsdóttur (Björnssonar) fyrir holdlegt sambland við alla karlmenn, frá 1659 (?) (frumrit á pappír).
Vitnisburður sr. Hálfdanar Rafnssonar á Undirfelli um þau hjónin sr. Gunnar Björnsson og Þórunni Jónsdóttur, dags. 17. maí 1665 (frumrit).
Samtal og gjörningur þeirra sr. Ólafs Egilssonar og sr. Gunnars Björnssonar, að sr. Ólafur afleggi á þessu vori Hofskirkju og hennar sókn gegn tveimur
hundruðum gildum, dags. 3. júní 1666 (frumrit).
Vitnisburður (á latínu) Brynjólfs biskups Sveinssonar um Gísla síðar rektor Vigfússon, dags. 27. sept. 1667. (Gísli var tengdasonur sr. Gunnars Björnssonar). - Afrit dr. Jóns Þorkelssonar eftir A.M. 219d, 4to. |
| Tímabil 3.1.3: | á milli 1628 og 1667 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Einkaskjalasafn nr. 225 |
Ítarupplýsingar |
| Saga skjalamyndara 3.2.2: | Sjá í skjali um skjalamyndara |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711402 |
| |