| |
Almennar upplýsingar |
| Auðkenni 3.1.1: | IS-ÞÍ-2278-0000-273-A-A-0002-01 |
| Skjalamyndari 3.2.1: | Guðmundur Ísleifsson (1850-1937) kaupmaður () |
| Heiti 3.1.2: | Ýmis skjöl:
Skírnarvottorð Guðmundar Ísleifssonar, útgefið af sr. Gísla Kjartanssyni 5. des. 1902.
Plögg um girðingu umhverfis Háeyrartorfuna 1915-18.
Um mælingar Bjarna Eggertssonar búfræðings á Stór ... |
| Yfirlit og innihald 3.2.1: | Ýmis skjöl:
Skírnarvottorð Guðmundar Ísleifssonar, útgefið af sr. Gísla Kjartanssyni 5. des. 1902.
Plögg um girðingu umhverfis Háeyrartorfuna 1915-18.
Um mælingar Bjarna Eggertssonar búfræðings á Stóru-Háeyrarlandi 1916.
Skrá um jarðarbætur Guðmundar Ísleifssonar 1901.
Plögg varðandi umsókn Guðmundar Ísleifssonar til Búnaðarfélagsins um girðingarstyrk 1915-16.
Plögg varðandi ábúðarréttindi Guðmundar Ísleifssonar á jörðinni Ásgarði í Grímsnesi 1896.
Plögg um skemmdir þær, sem flutningabrautin frá Eyrarbakka að Selfossi olli á jörðunum Stóru-Háeyri og Litla-Hrauni 1899 - 1901.
Plögg um vegagerð hjá Stóru-Háeyri.
Áætlanir um framræslu, áveituframkvæmdir og heftingu foksands hjá Eyrarbakka, gerðar af Gísla Gíslasyni búfræðingi 1885.
Afrit af gjafabréfi Þorleifs Kolbeinssonar til Stokkseyrarhrepps, dags. 16. febr. 1861.
Byggingarbréf: S. Sívertsen og Þorleifur Kolbeinsson byggja Sigurði Teitssyni jörðina Neistakot, dags. 6. febr. 1858.
Útbyggingarbréf: Adolph Pétursson í Steinskoti segir Jóhanni Bergssyni upp ábúð á jörðinni Stokkseyri, dags. 29. okt. 1850.
Samningur um lóð undir kirkjugarð á Eyrarbakka, dags. 8. des. 1893.
Matsgjörð á húsum og jarðabótum á Stóru-Háeyri 22. mars 1884.
Skjöl um viðskipti þeirra Guðmundar Ísleifssonar og Þóreyjar
Guðmundsdóttur frá Skúfslæk.
Vistráðningarsamningar milli Guðmundar Ísleifssonar og ýmissa manna 1897-1909.
Reikningur yfir afgjald Háeyrarhverfis 1864 - 1868.
Skýrsla um vertíðarhluti á Eyrarbakka 1861 - 1881. Skrifað hefur Þorleifur Kolbeinsson á Stóru-Háeyri.
Skýrsla um ógiftar persónur í Stokkseyrarprestakalli árið 1887 og barneignir þeirra.
Ýmsar skýrslur til skattanefndar Stokkseyrarhrepps árin 1884-1885. (Hér má sjá ýmsar upplýsingar um eignir erfingja Þorleifs Kolbeinssonar á Stóru-Háeyri).
Skýrsla um fiskafla á vertíðinni 1899 á Eyrarbakka.
Skrá um verkfæra menn í Stokkseyrarhreppi 1865.
Ýmis plögg um fiskifélagsdeildina á Eyrarbakka 1916 - 1921.
Áskorun um fjársöfnun til sjúkrahússbyggingar á Eyrarbakka, dags. 29. apríl 1919.
Kaupsamningar, afsöl o.þ.h. 1896 - 1921.
Viðskiptabók Háeyrarverslunar við Sparisjóð Árnessýslu 1891-1893.
Ýmis kvæðatíningur og fleira smálegt.
Ýmsir reikningar 1882-1924. |
| Tímabil 3.1.3: | á milli 1850 og 1924 |
| Upplýsingastig 3.1.4: | Örk |
| Athugasemdir 3.6.1: | Einkaskjalasafn nr. 74 |
Additional comments |
| Saga skjalamyndara 3.2.2: | Sjá í skjali um skjalamyndara |
| Tungumál 3.4.3: | Íslenska |
|
| |
Aðgengi að skjölum |
| Nauðsynleg leyfi: | Enginn |
| Ástand skjala: | Án takmarka |
| Aðgengi: | Almennt |
| |
Vefslóð á þessa færslu |
| Vefslóð: | https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711394 |
| |