IS-ÞÍ-2262-0000-273-A-A-0001-01 Bréf: \ Bréf frá Pétri Guðjónssyni settum sýslumanni í Árnsesýslu til Gísla \ Gíslasonar á Villingavatni, dags. 11. júlí 1850. \ Bréf frá Þórði Guðmundssyni sýslumanni í Árnessýslu til Gísla Gíslasonar á Vi ..., 1810-1869 (Örk)

Samhengi skjalaskráa

 

Almennar upplýsingar

Auðkenni 3.1.1:IS-ÞÍ-2262-0000-273-A-A-0001-01
Skjalamyndari 3.2.1: Gísli Gíslason (1774-1858) bóndi ()
Heiti 3.1.2:Bréf: Bréf frá Pétri Guðjónssyni settum sýslumanni í Árnsesýslu til Gísla Gíslasonar á Villingavatni, dags. 11. júlí 1850. Bréf frá Þórði Guðmundssyni sýslumanni í Árnessýslu til Gísla Gíslasonar á Vi ...
Yfirlit og innihald 3.2.1:Bréf: Bréf frá Pétri Guðjónssyni settum sýslumanni í Árnsesýslu til Gísla Gíslasonar á Villingavatni, dags. 11. júlí 1850. Bréf frá Þórði Guðmundssyni sýslumanni í Árnessýslu til Gísla Gíslasonar á Villingavatni, dags. 12. nóv. 1850 og 8. sept. 1854. Bréf frá sýslumanninum í Árnessýslu, Þórði Guðmundssyni, til Ingimundar Gíslasonar á Króki, dags. 31. mars 1854. Bréf frá Jóni Hjaltalín landlækni til Magnúsar Gíslasonar hreppstjóra á Villingavatni með beiðni um skýrslu um kláðalækningar, dags. 8. des. 1858. - Aftan á er svarbréf Magnúsar í uppkasti. Bréf frá Jóni hreppstjóra Kristjánssyni í Skógarkoti til Magnúsar Gíslasonar á Villingavatni, dags. 28. maí 1859. Bréf frá sýslumanninum í Árnessýslu til Þorgeirs hreppstjóra Þórðarsonar í Hagavík í Grafningi um ásetning sauðfjár, dags. 4. febr. 1858. Ótímasett og óundirritað bréf um ráðstöfun á ónefndri ekkju. Önnur skjöl: Skipunarbréf handa Gísla Gíslasyni til að vera sáttanefndarmaður í Grafnings- og Þingvallahreppi, dags. 10. júlí 1810. Skipunarbréf handa Gísla Gíslasyni til að vera hreppstjóri í Þingvallahreppi, dags. 8. ágúst 1843. Útnefningarbréf: Páll Melsted settur sýslumaður í Árnessýslu útnefnir þá Gísla Gíslason á Villingavatni, Halldór Jónsson á Hrauntúni og Jón Kristjánsson í Skógarkoti til að vera jarðamatsmenn í Þingvallahreppi, dags. 24. apríl 1849. Minniskompa Gísla Gíslasonar frá árunum 1817-1850, s.s. um vefnað, landskuld o.fl. Skrár um fjármuni, sem Gísli Gíslason á Villingavatni hefur látið út til barna sinna 1823-1850. Reikningar Gísla Gíslasonar á Villingavatni við Hafnarfjarðarverslun 1842-1859. Fyrirskrift fyrir Gísla Gíslason á Villingavatni um meðala- notkun frá Jóni landlækni Hjaltalín, 12. okt. 1855. Yfirlit yfir eftirlátnar eigur Gísla Gíslasonar á Villingavatni og úthlutun þeirra. Nokkrar jarðaúttektir: Torfastaðir í Þingvallahreppi 30. maí 1838 og 25. maí 1839, Tunga í Grafningi 30. maí 1862, Litli Háls í Grafningi 5. júní 1863, Hagavík 1851 og Villingavatn 21. maí 1850. Skuldarviðurkenning: Ólafur Jónsson á Hraðastöðum í Mosfellssveit viðurkennir 230 spesía skuld sína við Þórð Magnússon á Ölvesvatni í Grafningi, dags. 22. sept. 1843. Sýslupassi Rósu Jónsdóttur, sem fluttist frá Stekkjarkoti í Mosfellssveit að Króki í Grafningi 1850. - Áritaður er vitnisburður sr. Stefáns Þorvaldsonar á Mosfelli um Rósu. Byggingarbréf: Þórður Gíslason á Úlfljótsvatni byggir Magnúsi Gíslasyni jörðina Villingavatn, dags. 6. júní 1851. Hreppaskilaþingboð í Þingvallahreppi, dags. 16. maí 1854 og undirritað af Árna hreppsstjóra Björnssyni í Fellsenda. Útbyggingarbréf: Kristján J. Matthiesen á Hliði á Álftanesi byggir Guðmundi Guðmundssyni út af Torfastöðum í Grafningi, dags. 23. nóv. 1858. Landsyfirréttardómur í málinu: Fyrra hjónabandserfingjar Gríms bónda Þorleifssonar gegn ekkju hans, Hallgerði Þórhalladóttur, og börnum þeirra, dags. 9. ágúst 1869.
Tímabil 3.1.3:á milli 1810 og 1869
Upplýsingastig 3.1.4:Örk
Athugasemdir 3.6.1:Einkaskjalasafn nr. 39

Additional comments

Saga skjalamyndara 3.2.2:Sjá í skjali um skjalamyndara
Tungumál 3.4.3:Íslenska
 

Aðgengi að skjölum

Nauðsynleg leyfi:Enginn
Ástand skjala:Án takmarka
Aðgengi:Almennt
 

Vefslóð á þessa færslu

Vefslóð:https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711350
 
Upphafssíða|Pöntunarkarfaengar færslur|Innskráning|is en
SKJALASKRÁR