IS-ÞÍ-2224-0000-273-A-A-0002-01 „Vita“ Bjarna Þorsteinssonar, samin af sjálfum honum í Kaupmannahöfn, \ 1803 (á latínu). \ Lóðseðill Bjarna Þorsteinssonar í jörðinni Kerlingardal, dags. 24. nóv. 1794. \ Det kgl. söekadets korps og det kgl ..., 1794-1857 (Örk)

Samhengi skjalaskráa

 

Almennar upplýsingar

Auðkenni 3.1.1:IS-ÞÍ-2224-0000-273-A-A-0002-01
Skjalamyndari 3.2.1: Bjarni Þorsteinsson (1782-1876) amtamaður ()
Heiti 3.1.2:„Vita“ Bjarna Þorsteinssonar, samin af sjálfum honum í Kaupmannahöfn, 1803 (á latínu). Lóðseðill Bjarna Þorsteinssonar í jörðinni Kerlingardal, dags. 24. nóv. 1794. Det kgl. söekadets korps og det kgl ...
Yfirlit og innihald 3.2.1:„Vita“ Bjarna Þorsteinssonar, samin af sjálfum honum í Kaupmannahöfn, 1803 (á latínu). Lóðseðill Bjarna Þorsteinssonar í jörðinni Kerlingardal, dags. 24. nóv. 1794. Det kgl. söekadets korps og det kgl. söekadets akademi 1818-1821. Þessi plögg eru frá því að Bjarni var auditör við akademíið. Skjöl um stofnun sjóðs til heiðurs hjónunum Bjarna Þorsteinssyni og konu hans, Þórunni Hannesdóttur, í tilefni af gullbrúðkaupsdegi þeirra 20. júlí 1871. Fjárhaldsreikningar Magnúsar Stephensens fyrir umboði Þórunnar Hannesdóttur og önnur skjöl, er varða fjármuni hennar. Fæðingarvottorð Finns V. Thorsteinssonar, útgefið af Ásgrími Vigfússyni Hellnapresti. - Kom í Þjóðskjalasafn 1952 frá Magnúsi Kjaran kaupmanni. Endurminningar Bjarna Þorsteinssonar um Grím Jónsson amtmann. Líklega bréfauppköst eða álit Bjarna Þorsteinssonar um mál út af svonefndum Hlíðarendareka. - Inn í er lagt bréf frá sr. Gísla Thorarensen til Bjarna, dags. 21. nóv. 1859. Umburðarbréf frá Bjarna amtmanni Þorsteinssyni o.fl. í Vesturamtinu, dags. 10. júní 1835, að því er virðist sent með hefti af Nordisk Tidskrift. Brot úr skrá um skjalasafn Vesturamtsins, líklega þegar Bjarni sagði af sér embættinu 1849. Samrit af skipunarbréfi Jóhanns Árnasonar hreppstjóra á Borg á Mýrum gefnu út af Bjarna amtmanni Þorsteinssyni 20. apríl 1843. Afsal B. Benedictssonar til handa Holger P. Clausen kaupmanni fyrir verslunarhúsum o.fl. í landi Stapa og Ósakots, dags. í Khöfn 12. des. 1823. Vitnisburður útgefinn í Khöfn 2. apríl 1827 um sölu H. P. Clausens á íbúðarhúsinu á Stapa til Bjarna amtmanns Þorsteinssonar. Ýmis uppköst Bjarna Þorsteinssonar 1816 - 1864. Afgjaldabók Svignaskarðs og Fróðhúsa 1819 - 1857. Prentaðar spurningar um landbúnaðarmál frá landbúnaðar- félaginu danska, dags. í des. 1821. Prentuð gögn um Dannebrogsorðu og Dannebrogsmenn. Tímatal í nokkrum Íslendingasögum. Þjóðakyn rakið til Nóa og fleiri uppköst. Flest eða allt með hendi Páls stúdents Pálssonar. „Om Wellerwände Bygninger“ meddelt af hr. etatsraad Arents (afrit). Uppköst að margs konar skrám og skýrslum um jarðir og dýrleika þeirra og margt fleira, sumt ósamstæð brot. Ódagsett eftirrit af bréfi um byggingu biskupsseturs. Síðari hluti bréfs frá Steingrími biskupi Jónssyni til Rentukammersins 18. ágúst 1825. Register over de gamle Love og Forordninger udgivne af de Oldenborgske Konger fra Aar 1448 til Aar 1643, [redigeret uden Tvivl af Professor iuris, Conferenceraad J. Erichsen, afskrevet med den Sidstnævntes Sön Amtmand L. Erichsens Haand]. Fortegnelse over Höjesterets Domme í Islandske Sager fra Begyndelsen af Aaret 1800 til Maii 1822. Uppkast að umburðarbréfi, ótímasett og óundirritað. Bréfauppköst, flest ótímasett og óundirrituð með ýmsum rithöndum. Greinargerð um visitatiur í Ísafjarðarsýslu 1852.
Tímabil 3.1.3:á milli 1794 og 1857
Upplýsingastig 3.1.4:Örk
Athugasemdir 3.6.1:Einkaskjalasafn nr. 44

Additional comments

Saga skjalamyndara 3.2.2:Sjá í skjali um skjalamyndara
Tungumál 3.4.3:Íslenska
 

Aðgengi að skjölum

Nauðsynleg leyfi:Enginn
Ástand skjala:Án takmarka
Aðgengi:Almennt
 

Vefslóð á þessa færslu

Vefslóð:https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1711301
 
Upphafssíða|Pöntunarkarfaengar færslur|Innskráning|is en
SKJALASKRÁR