IS-ÞÍ-2143-2006-022-A-A-0001-08 Leyfi til ekkjunnar Guðrúnar Halldórsdóttur í Kollsvík til að sitja í óskiptu búi, dagsett 2. janúar 1880. Útdráttur úr lista yfir ógreidd manntalsgjöld í Suðurfjarðarhreppi fyrir árið 1882. Útskipaða ..., 1880-1920 (Örk)

Samhengi skjalaskráa

 

Almennar upplýsingar

Auðkenni 3.1.1:IS-ÞÍ-2143-2006-022-A-A-0001-08
Skjalamyndari 3.2.1: Guðmundur Sigurðsson (1853-1941) hreppstjóri ()
Heiti 3.1.2:Leyfi til ekkjunnar Guðrúnar Halldórsdóttur í Kollsvík til að sitja í óskiptu búi, dagsett 2. janúar 1880. Útdráttur úr lista yfir ógreidd manntalsgjöld í Suðurfjarðarhreppi fyrir árið 1882. Útskipaða ...
Yfirlit og innihald 3.2.1:Leyfi til ekkjunnar Guðrúnar Halldórsdóttur í Kollsvík til að sitja í óskiptu búi, dagsett 2. janúar 1880. Útdráttur úr lista yfir ógreidd manntalsgjöld í Suðurfjarðarhreppi fyrir árið 1882. Útskipaðar vörur frá Patreksfirði árið 1899 og 1901. Skýrsla um afhendingu sveitarskjala frá S. Bachmann á Vatneyri til Guðmundar Sigurðssonar í Vatnsdal, 1. nóvember 1900. Yfirlit yfir það sem hefur innborgast til hreppstjóra Guðmundar Sigurðssonar af dánarbúi Guðmundar Ólafssonar og það sem hefur verið útborgað fyrir búið, dagsett 8. desember 1908. Ólafur Jóhannesson á Vatneyri kærir yfir útsvari sínu, dagsett 14. nóvember 1909. Björn Jónsson fyrrverandi ráðherra (Ísafoldar-Björn) gefur Hermanni Þórðarsyni umboð til að vera fulltrúi sinn við kosningar í Patrekshreppi, dagsett 10. október 1911. Útskrift úr fógetabók Barðastrandarsýslu út af mótmælum Guðmundar K. Bárðarsonar á Vatneyri gegn lögtaki, dagsett 27. apríl 1912. Listi yfir (fimm) einstaklinga í Patrekshreppi sem höfðu áætlaðar tekjur af eignum í Rauðasandshreppi árið 1913. Þorvaldur Jakobsson í Sauðlauksdal, óskar eftir aðstoð sýslumanns til að innheimta barnsmeðlag frá Markúsi Jósefssyni, skósmið á Patreksfirði, með óskilgetinni dóttur hans, Markúsínu Áslaugu, fæddri 20. október 1905. Bréfið dagsett 1. júlí 1913 og hafa stefnuvottar og sýslumaður einnig ritað á það. Bréf frá sýslumanni í Barðastrandarsýslu, 18. júlí 1913, þar sem lýst er eftir manni vegna ógoldinna barnsmeðlaga á Akureyri, að nafni Guðmundur Baldvinsson. Bréf frá sýslumanni í Barðastrandarsýslu sem sendir kjörseðla til undirkjörstjórnar Patrekshrepps 27. september 1916. Kjörskrá til alþingiskosningar í Patrekshreppi, gildir frá 1. júlí 1916-30. júní 1917. Athugasemdir hinnar umboðslegu endurskoðunar við tekjuskattreikning í Patreksfjarðarhreppi 1919. Ólafur Jóhannesson kærir tekjuskattsálagninu sína, 6. nóvember 1920. Skattanefnd úrskurðar um útsvarskæru Ólafs Jóhannessonar, 29. nóvember 1920.
Tímabil 3.1.3:á milli 1880 og 1920
Upplýsingastig 3.1.4:Örk

Ítarupplýsingar

Tungumál 3.4.3:Íslenska
 

Aðgengi að skjölum

Nauðsynleg leyfi:Enginn
Ástand skjala:Án takmarka
Aðgengi:Almennt
 

Vefslóð á þessa færslu

Vefslóð:https://skjalaskrar.skjalasafn.is/detail.aspx?ID=1666780
 
Upphafssíða|Pöntunarkarfaengar færslur|Innskráning|is en
SKJALASKRÁR