Haraldur Ágústsson (1910-2000) húsgagnasmiður og yfirkennari ()

 

Grunngögn

ID nafnHaraldur Ágústsson (1910-2000) húsgagnasmiður og yfirkennari ()
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:31. maí 1910
Saga 5.2.2:Haraldur Ágústsson fæddist í Reykjavík 31. maí 1910.
Foreldrar hans voru þau Ingileif Anna, fædd Bartels (1878-1958) húsmóðir og Ágúst Kristján Sigurðsson (1873-1943) prentari í Reykjavík.
Haraldur kvæntist 17. desember 1949 Baldvinu Halldóru Hafliðadóttur fædd 25. nóvember 1908, dáin 23. júlí 1991. Foreldrar Baldvinu voru Ágústína Margrét Aradóttir (1883) verslunarkona og Hafliði Baldvinsson fisksali. Bræður Haraldar voru Sigurður (1903-1979) og Henrik Wilhelm (1905-1966).
Haraldur var teiknikennari við Iðnskólann í Reykjavík árin 1937-1981, þar af yfirkennari frá árinu 1976. Hann var teiknikennari við Iðnskólann á Patreksfirði árið 1947, við Gagnfræðaskóla verknáms árin 1951 til 1960, kennari í teiknifræði við verkfræðideild Háskóla Íslands árin 1962 til 1975 og aðjúnkt árið 1969, stundakennari í teiknifræði við MT árin 1972 til 1976, auk þess sem hann kenndi teiknun og viðarfræði á fjölda námskeiða.
Næmt auga hans fyrir því sem betur mátti fara varð til þess að hann kom ýmsu til betri vegar í því efni, meðal annars með því að bæta kennslugögn í sínum greinum, skrifa kennslubækur o.fl. Margt af því sem hann þannig gerði tengt skólanum og kennarastarfinu náði langt út fyrir veggi skólans. Þannig stóð Haraldur oft fyrr á árum fyrir námskeiðum fyrir iðnskólakennara, einkum utan af landi, sem þá áttu ekki í annað hús að venda með leiðbeiningar.
Haraldu var mikill áhugamaður um ýmis fræðistörf, til dæmis orðasöfn og orðasmíði og hafði samstarf við marga vísindamenn og aðra kunnáttumenn, sem oft leituðu ráða hjá honum eða vísuðu til hans. Merkur þáttur í fræðimennsku hans eru rannsóknir í viðarfræði og hið mikla safn hans yfir meira en 1600 viðarsýni, sem talið er hið stærsta sinnar tegundar á Norðurlöndum. Hann var í mörg ár félagi í alþjóðlegum samtökum fræðimanna á þessu sviði.
Haraldur Ágústsson lést 26. júní 2000.
(Heimild: Morgunblaðið 5. júlí 2000)
Reglur og/eða samkomulag 5.4.3:ISAAR (CPF) - International Standard Achival Authority Record for Corporate Bodies, persons and Families