Dagný Valgeirsdóttir (1924-2010) kennari ()

 

Grunngögn

ID nafnDagný Valgeirsdóttir (1924-2010) kennari ()
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Eva Björnsson (fædd Borgen) og Dagný Valgeirsdóttir
Dagný Valgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 31. janúar 1924. Hún lést á Landakotsspítala 22. janúar 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Valgeir Björnsson, f. 9. september 1894, d. 16. júní 1983, og Eva Björnsson, f. Borgen í Christiania (Osló), Noregi, þann 12. júlí 1898, d. 3. júní 1984. Dagný var elst fjögurra systkina.
Dagný ólst upp í foreldrahúsum á Laufásvegi 67 í Reykjavík. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1943. Veturinn '45-'46 dvaldist hún hjá ættingjum sínum í Noregi og lagði stund á listnám. Veturinn '46-'47 sótti hún húsmæðraskóla í Sorø í Danmörku. Eftir heimkomuna vann hún á Röntgendeild Landspítalans um árabil. Dagný lauk kennaranámi 1961 og kenndi við Austurbæjarskólann til starfsloka. Dagný hafði mikinn áhuga á myndlist og tónlist og sótti myndlistarsýningar og tónleika sér til yndisauka meðan heilsan leyfði.
Saga Dagnýjar Valgeirsdóttur er samofin sögu Austurbæjarskóla. Hún fæddist 1924, árið sem Sigurður Guðmundsson vann frumdrög nýs barnaskóla er valinn hafði verið staður á Skólavörðuholti nærri fyrirhugaðri háborg íslenskrar menningar. Faðir Dagnýjar, Valgeir Björnsson bæjarverkfræðingur, vann náið með byggingarnefnd þessa skóla er átti eftir að verða einn glæsilegasti sinnar tegundar á Norðurlöndunum. Sjá nánar vefsíðu á slóðinni www.mbl.is/mm/mogginn/netminningar/minning.html?netm_id=94925
Reglur og/eða samkomulag 5.4.3:ISAAR (CPF) - International Standard Achival Authority Record for Corporate Bodies, persons and Families