| Saga 5.2.2: | Hjalti Þorsteinsson (1665-1754), prestur. Stúdent í Skálholtsskóla 1686. Tók guðfræðipróf í Kaupmannahafnarháskóla 1690, en nam jafnframt hljóðfæraslátt, höggmyndagerð og málaralist. Varð kirkjuprestur í Skálholti 1690. Fékk Vatnsfjörð 1691, lét af prestskap 1742. Lengi prófastur í Ísafjarðarsýslu. Frægur af málaralist sinni, skreytti bæði kirkjur og gerði andlitsmyndir. |