| Saga 5.2.2: | Guðrún hefur áður búið á Búðum á Fáskrúðsfirði, enda eigandi þeirrar jarðar. Fyrri mann sinn, Þórð Erlendsson, er hún talin hafa misst 1806. Sonur þeirra, Þórarinn vefari, sem bjó í Danmörku og tók sér ættarnafnið Holm, lenti þar í afbrotamáli og dó í Viborgarfangelsi árið 1855. Samkvæmt aðalmanntali 1835 bjó Guðrún þá að Urð í Eskifjarðarkauptúni með síðari manni sínum, Ásmundi Ísfeld beyki. Var hún þá 49 ára en hann 23 ára. Í aðalmanntali 1850 er Guðrún skráð skilin. Hún hefur dáið vorið 1855. Sbr. Ættir Austfirðinga 6016-6017 o.fl. Þessi plögg eru úr skjölum Suður-Múlasýslu. |