| Saga 5.2.2: | Finnur Jónsson (1704-1789), biskup. Stúdent í Skálholtsskóla 1723. Tók guðfræðipróf í Kaupmannahafnarháskóla 1728. Fékk Reykholt 1732 og varð sama ár prófastur í Borgarfjarðarsýslu. Officialis í Skálholtsbiskupsdæmi 1743-47 og biskup þar 1754-85. Doktor í guðfræði 1774, fyrstur Íslendinga. Fékkst mjög við ritstörf, og er þar mest kirkjusaga hans, er út kom í 4 bindum í Kaupmannahöfn 1772-78. |