| Saga 5.2.2: | Skjöl þessi varða einkum Guðríði Ormsdóttur (1614-1718) í Eyjum í Kjós Vigfússonar sýslumanns s.st., Gísla Halldórsson (1640-1717), systurson Guðríðar Ormsdóttur, sem lengi var ráðsmaður í Eyjum, Sigurð Sigurðsson eldra, alþingisskrifara og sýslumann (1679-1745), sem fyrst bjó að Eyjum og síðar að Saurbæ á Kjalarnesi, og son hans Brynjólf Sigurðsson (1708-1771) sýslumann í Árnessýslu, er lengst bjó í Hjálmholti. Skjölin voru tekin úr bandi um ársreikning Skálholtsstóls 1745-46, og eru mjög skert. Fylgir þeim öllum uppskrift dr. Björns K. Þórólfssonar skjalavarðar. |