Baðhús Reykjavíkur ()

 

Grunngögn

ID nafnBaðhús Reykjavíkur ()
 

Upprunaupplýsingar

Saga 5.2.2:Félag í Reykjavík. Stofnað 27. febrúar 1906. Tilgangur fálagsins: Að setja á stofn og reka baðhús í Reykjavík. Fyrsti formaður Eggert Claessen yfirréttarmálflutningsmaður. Félagið leyst upp 1912 og baðhúsið selt bæjarstjórn Reykjavíkur. Plögg þessi voru afhent Þjóðskjalasafni með bréfi undirrituðu af Eggert Claessen 14. okt. 1915.


Frá Borgarskjalasafni: Bæjarstjórn Reykjavíkur keypti Baðhús Reykjavíkur árið 1912. Áður hafði það verði rekið sem hlutafélag með styrk frá bæjarstjórn frá árinu 1905 af Eggerti Claessen aðstoðarmanni í ráðuneytinu og Jóni Þorlákssyni verkfræðingi. Baðhúsið hafði verið opið almenningi frá 12. febrúar 1907. Saga baðhúsa í Reykjavík nær þó aftur til ársins 1895. Bæjarstjórn rak baðhúsið til ársins 1965.

Heimild:V
Vef. Andrés Erlingsson, „Baðhús í Reykjavík“, Geymt en ekki gleymt - norrænir skjaladagar 6. nóvember 2019, https://2019.skjaladagur.is/badhus-i-reykjavik/, 29. ágúst 2025.
Reglur og/eða samkomulag 5.4.3:ISAAR (CPF) - International Standard Achival Authority Record for Corporate Bodies, persons and Families