| Saga 5.2.2: | Ásgeir Ó. Einarsson dýralæknir fæddist þann 21. nóvember 1906 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Þórstína Björg Gunnarsdóttir (1882-1950) húsfreyja og Einar Ólafsson (1884-1955) matsveinn og verkamaður. Ásgeir tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1927. Lauk háskólaprófi í dýralækningum frá Tierartzliche Hochschule í Hannover í Þýskalandi í júlí 1934. Almennt dýralækningaleyfi á Íslandi 1. sept. 1934. Nám í loðdýrasjúkdómum í Kassel og Osló 1938. Nám í rannsóknartækni við sníkjudýrarannsóknir í Weybridge, Englandi 1965. Nám í Hannover og Newcastle, Englandi 1967 í sömu fræðum. Sótti norræn dýralæknamót í Osló 1954, Helsinki 1958 og Kaupmannahöfn 1962. Ásgeir starfaði við kjöt- og kúaskoðun fyrir héraðsdýralækninn í Gullbringu- og Kjósarumdæmi 1931. Aðstoðarlæknir hjá héraðsdýralækni í Gullbringu- og Kjósarumdæmi frá mars til sept. 1932. Skipaður héraðsdýralæknir í Austurlandsumdæmi 1934. Aðstoðaði próf. Níels Dungal hjá Rannsóknarstofnun Háskólans við rannsóknir á mæðuveiki frá janúar til september 1936 og 1937. Veitt lausn frá embætti 1939 en settur aftur 1. september sama ár vegna kjötskoðunar og rannsókna á garnaveiki á Héraði. Sjálfstætt starfandi dýralæknir í Reykjavík frá 1940. Skipaður héraðsdýralæknir í Gullbringu- og Kjósarumdæmi 15. febrúar 1950. Veitt lausn frá embætti vegna afleiðinga vinnuslyss 1. nóvember 1968. Settur í sama embætti til áramóta 1968. Settur héraðsdýralæknir í V- Skaftafellsumdæmi 1. júlí 1969 til 1. júlí 1970. Skipsdýralæknir við hestaútflutning, í alls ellefu ferðum, veturna 1968-1970. Skipaður heilbrigðisráðunautur Heilbrigðiseftirlits ríkisins 1. júlí 1970. Veitt lausn frá störfum 1. september 1976. Starfaði hluta árs við ormarannsóknir að Keldum og Keldnaholti á árunum 1976-1980. Starfaði við kjötskoðun og vann sem dýralæknir á ýmsum stöðum til dæmis á Hólmavík og á Óspakseyri 1973-1974, á Kópaskeri 1976-1979, á Vopnafirði 1980-1981 og Vík í Mýrdal 1982. Bókavörður við Bókasafni Grundar 1983-1997. Ásgeir lést þann 4. apríl 1998. Lengri ágrip af sögu skjalamyndara má finna í öskju A-1. Sjá einnig E-383 Guðrún Lára Ásgeirsdóttir. Munir Ásgeirs eru á Lækningasafni Nesstofu. |