Hafskip hf. ()

 

Grunngögn

ID nafnHafskip hf. ()
 

Upprunaupplýsingar

Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:1958-1985
Saga 5.2.2:Hlutafélagið Hafskip h.f. var stofnað 11. nóvember 1958 að frumkvæði Verslanasambandsins. Stofnendur og hluthafar voru 35 talsins og stofnfé var 1.565.000 kr. Markmiðið var að bjóða upp á hagkvæmari flutninga fyrir kaupmenn innan Verslanasambandsins en fram að því hafði Eimskipafélag Íslands haft einokunarstöðu á flutningum til og frá landinu. Ákveðið var að fjárfesta í nýju skipi. Til þess að fjármagna kaupin samþykktu hluthafarnir víxla að andvirði hlutafjár síns sem Útvegsbankinn keypti. Fyrsta skip Hafskipa, M.s. Laxá, var tilbúið í september 1959 og kom í heimahöfn sína í Vestmannaeyjum með timburfarm frá Póllandi í desember það ár.

Árið 1963 höfðu tvö skip, M.s. Rangá og M.s. Selá, bæst við og gat Hafskip nú veitt öðrum íslenskum skipafélögum þ.e. Eimskipafélaginu, Skipadeild Sambands íslenskra samvinnufélaga, Eimskipafélagi Reykjavíkur og Jöklum h.f. beina samkeppni með áætlunarferðum til Hamborgar, Rotterdam og Hull. Fyrstu fimm árin hafði skipafélagið verið tiltölulega lítið fyrirtæki með fáa starfsmenn og það sá fyrst og fremst um flutninga fyrir Verslanasambandið. Frá stofnun var Sigurður Njálsson forstjóri Hafskips en undir lok sjöunda áratugarins versnaði afkoman og hann sagði af sér árið 1970.

Hafskip var lýst gjaldþrota 6. desember 1985. Málsatvik voru með þeim hætti að úr varð mikið dómsmál, Hafskipsmálið. Dómsmálið vatt mikið upp á sig og lauk í júní 1991, fimm árum eftir gjaldþrotið, með því að fjórir æðstu menn fyrirtækisins voru dæmdir sekir um brot á lögum og Útvegsbankinn varð gjaldþrota. (Heimild: https://is.wikipedia.org/wiki/Hafskip_hf.)