| Saga 5.2.2: | Geir Zoega hóf útgerð sína sumarið 1866 með kaupum á þilskipinu Fanny. Útgerðin óx jafnt og þétt og hóf Geir verslunarrekstur samhliða útgerðinni 1880, í geymsluskúr hjá íbúðarhúsi sínu. Hann lét svo reisa hentugra húsnæði við Vesturgötu. Kristjana, dóttir Geirs, giftist Th. Thorsteinssyni 1889 og gerðist hann þá meðeigandi og samstarfsmaður Geirs við verslunina. Þeir áttu saman nokkur skip og störfuðu saman þar til Thorsteinsson stofnaði verslunina Liverpool. Þá slitu þeir samstarfinu og fékk Thorsteinsson nokkur skip og hóf hann eigin útgerð. Upp úr því keypti Geir þrjú ný skip frá Hull. Geir átti að jafnaði 7-9 þilskip á árunum 1893-1908. 1908 seldi Geir öll skip sín og hafði hug á togaraútgerð en steig aldrei það skref. (Gils Guðmundsson. Íslenzkir athafnamenn I.)
Geir Zoega yngri var sonur Geirs eldra og hóf hann útgerð 1918, rak Haddensstöðina í Hafnarfirði 1920-1923. Varð framkvæmdarstjóri Heyllersútgerðarinnar 1924-1929. Geir gerðist umboðsmaður vátryggingafélags togaraeigenda í Hull árið 1934 og 1946 varð hann einnig umboðsmaður vátryggingafélaga togaraeigenda í Fleetwood, Grimsby og Aberdeen. Geir lét af umboðsstörfum 1975 og tók þá sonur hans, Geir Zoega, við þeim. Geir var framkvæmdarstjóri fiskflutninga á vegum Owens Hellyer í seinni heimsstyrjöldinni en eftir það starfaði hann á vegum The Ministry of Food til loka heimsstyrjaldarinnar. (Lesbók Morgunblaðsins. Þættir úr ævi Geirs Zoega. 18.tbl. 1980. Bls. 2.) |