| Saga 5.2.2: | Bergur Garðarsson Gíslason fæddist í Leith í Skotlandi 6. nóvember 1907, lést 22. maí 2008. Foreldrar hans voru Garðar Gíslason og Þóra Sigfúsdóttir. Systkini hans voru þau Þóra, Kristján og Margrét. Hann lauk stúdentsprófi frá MR og verslunar- og iðnnámi i Bretlandi. Bergur kvæntist 14. sept. 1935 Ingibjörgu Jónsdóttur, fæddri 30. apríl 1915. Foreldrar hennar voru Ragnheiður Thorarensen og Jón Hjaltlín Sigurðsson. Dætur Bergs og Ingibjargar eru: Þóra (1938), Ragnheiður (1942), Gerður og Bergljót (1943) og Ása (1950). Hann fór snemma inni í fyrirtæki föður síns, var í Hull 2 ár og á aðalskrifstofunni frá 1930, en tók við framkvæmdastjórn árið 1940. Var í ráðgjafarnefnd um utanríkisverslun að tilhlutan Verslunarráðs og átti sæti í viðskiptasamninganefnd við Rússland. Í stjórn Innflytjendasambandsins í mörg ár og fulltrúi Félags íslenskra stórkaupmanna í Vöruskiptafélagi Íslands. Átti mikinn þátt í uppbyggingu Flugfélags íslands og var formaður stjórnar til 1945, varaformaður síðan. Í framkvæmdastjórn Árvakurs um margra ára skeið og í Flugráði í 12 ár. Einnig var hann í stjórn ýmissa samtaka. Á Íslandi var umboðs- og heildverslun Garðars Gíslasonar fyrst í svonefndu Herdísarhúsi við Austurstræti í Reykjavík og var hann fyrsti heildsali á Íslandi. 1905 var byggt hús á Hverfisgötu 30, fyrir starfsemina, sem síðar var selt og húsið Kaupangur við Lindargötu keypt fyrir skrifstofu og heildsölu. Garðar reisti vörugeymsluhúsið Skjaldborg, við Skúlagötu og flutti síðan alla starfsemi sína þangað og var þar til 1918 er hann keypti Hverfisgötu 4, þar sem heildverslun Garðars Gíslasonar var rekin síðan. Á árunum 1954-1958 var byggt stórhýsi á þeim stað. Garðar, og síðar Bergur, voru ræðismenn Brasilíu á Íslandi. |