| Saga 5.2.2: | Gunnar Þorbjörn Gunnarsson (1926-2007) varð stúdent frá MR 1946. Hann hóf fyrst nám í flugvélaverkfræði við Spartan School of Aeronautics í Tulsa, Oklahoma í Bandaríkjunum árið 1946, en lauk hins vegar þaðan námi í rekstri flugfélaga og flugvalla árið 1948.
Gunnar starfaði hjá Loftleiðum hf. frá 1948-1954, sem gjaldkeri 1948-1952 og framkvæmdastjóri 1952-1954. Átti frumkvæði að því að Loftleiðir gerðu samning við Braaten í Noregi en þar með varð mögulegt að hefja reglubundið flug frá Íslandi til Ameríku. Hjá Íslenskum aðalverktökum starfaði Gunnar síðan í 42 ár, sem skrifstofustjóri 1954-1956, framkvæmdastjóri 1956-1977 og forstjóri ásamt Thor Ó. Thors 1977-1996 er hann fór á eftirlaun. |