| Saga 5.2.2: | Hólmaprestakall náði yfir Vöðlavík og Reyðarfjörð eða Reyðarfjarðarhrepp allan, að og með Eyri, ysta bæ í hreppnum sunnan Reyðarfjarðar. Árið 1951 var nafni þess breytt í Eskifjarðarprestakall. Fríkirkja var stofnuð í Reyðarfirði upp úr 1880 sem starfaði í um hálfa öld. Prestsþjónustubók hefur verið færð fyrir fríkirkjuna í Reyðarfirði á árunum 18871928. Sóknarmannatal er til fyrir árin 1882, 1885, 18891903, 1924, 1926 og 1927.
Sóknir: Hólmar (1911), Búðareyri/Reyðarfjörður (1911), Eskifjörður (1899/1900). |