| Saga 5.2.2: | Dvergasteinsprestakall náði árið 1801 yfir Seyðisfjörð og Mjóafjörð. Mjóafjarðarþing voru sameinuð Dvergasteinskalli árið 1795 en köllin aðskilin árið 1882 þegar prestur kom til Mjóafjarðar. Hluti Klyppsstaðarkalls (Klyppsstaðarsókn) var lagður til Dvergasteinskalls árið 1888. Dvergasteinsprestakall fékk nafnið Seyðisfjarðarprestakall árið 1942 en var sameinað Egilsstaðakalli árið 2013.
Sóknir: Dvergasteinn (-1885), síðar Seyðisfjörður (Vestdalseyri 1885-1922 og Fjarðaralda 1922-2013), Fjörður í Mjóafirði (1795-1882), Klyppsstaður (1888-1973).
Skjalaeyðing: Bruni varð á Dvergasteini 11. mars 1922. Þar hafa líklega brunnið prestsþjónustubók Dvergasteinskalls 1855-1885, prestsþjónustubók Klyppsstaðarsóknar 1889-1921 og sóknarmannatal Klyppsstaðarkalls 1878-1887. |