| Saga 5.2.2: | Höfðaprestakall í Höfðahverfi náði (1801) yfir Höfðahverfi og Látraströnd, frá og með Hléskógum og Höfða að og með Látrum, eða ytri hluta Grýtubakkahrepps nema Keflavík og Fjörður. Prestssetrið var flutt að Grenivík árið 1890. Árið 1902 tók Grenivíkurprestur við þjónustu Þönglabakkaprestakalls og þjónaði Þönglabakkasókn til ársins 1927 sem átti að fara undir Laufáskall eftir lögum frá 1907 en Hálsprestur tók við Brettingsstaðasókn árið 1908. Grenivíkurkall féll saman við Laufásprestakall árið 1927 (lög frá árinu 1907).
Sóknir: Höfði (1886), Grýtubakki (1880), Grenivík (18861927), Þönglabakki (19021927), Brettingsstaðir (þjónusta 19021908). |