| Saga 5.2.2: | Helgastaðaprestakall náði yfir Reykjadal í Þingeyjarsýslu, frá og með Hólkoti og Halldórsstöðum að utan, og bæi austan Skjálfandafljóts, frá Vaði að Ingjaldsstöðum. Þverársókn var lögð til Helgastaðakalls frá Grenjaðarstaðarkalli árið 1890 (lög árið 1880). Þá náði kallið yfir allan innri hluta Helgastaðahrepps og varð að Reykdælahreppi árið 1893. Helgastaðakall var lagt niður árið 1907 og sameinað Grenjaðarstaðarprestakalli.
Sóknir: Helgastaðir (1872), Einarsstaðir (1907), Þverá (18901907).
Skjalaeyðing: Bæjarbruni varð á Helgastöðum 21. febrúar 1896. Þar virðast m.a. hafa brunnið prestsþjónustubók Helgastaðaprestakalls frá 1816-1868 og sóknarmannatöl frá 1853-1895. |