| Saga 5.2.2: | Hálsprestakall náði yfir Fnjóskadal allan og Ljósavatnsskarð eða stóran hluta Hálshrepps og þrjá bæi í Ljósavatnshreppi, Stóru- og Litlutjarnir og Arnstapa. Hluti Þönglabakkaprestakalls eða Flatey og Flateyjardalur (Brettingsstaðasókn) kom í Hálskall árið 1908 (lög árið 1907). Brettingsstaðasókn fór svo í Húsavíkurprestakall árið 1955 (lög árið 1952). Hálsprestakall rann saman við Staðarfellsprestakall árið 1991 sem þá fékk heitið Ljósavatnsprestakall. Hið gamla Hálsprestakall varð hluti af Laufáskalli árið 2006.
Sóknir: Háls (1991), Draflastaðir (1991), Illugastaðir (1991), Brettingsstaðir (19081955). |