| Saga 5.2.2: | Grenjaðarstaðarprestakall náði (1801) yfir Aðaldal austan Kálfalækjar (landamerkja Grenjaðarstaðar og Múla í Aðaldal) og Laxár (ekki bæina Haga, Árbót og Núpa), Laxárdal og Reykjahverfi út að Þverá og Heiðarbót. Flestir bæirnir voru í Helgastaðahreppi nema Reykjahverfi, frá og með Brekknakoti, var í Húsavíkurhreppi. Múlaprestakall var sameinað Grenjaðarstaðarprestakalli árið 1889 (lög árið 1880) en Þverársókn fór til Helgastaðakalls árið 1890 (lög árið 1880). Helgastaðaprestakall féll saman við Grenjaðarstaðarkall árið 1907 sem þá náði yfir allan Helgastaðahrepp forna (Reykjadals- og Aðaldælahreppa frá árinu 1893). Þóroddsstaðarsókn var lögð til Grenjaðarstaðarkalls frá Ljósavatnsprestakalli árið 2006.
Sóknir: Grenjaðarstaður, Þverá (1889, 1907), Nes (1889), Einarsstaðir (1907), Þóroddsstaður (2006). |