Hvanneyri í Siglufirði / Siglufjörður ()

 

Grunngögn

ID nafnHvanneyri í Siglufirði / Siglufjörður ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Hvanneyri í Siglufirði / Siglufjörður
Saga 5.2.2:Í Hvanneyrarprestakalli voru Úlfsdalir, Siglufjörður, Héðinsfjörður og Hvanndalir. Úlfsdalir voru í Holtshreppi í Skagafjarðarsýslu til ársins 1826 er þeir fóru í Hvanneyrarhrepp og Eyjafjarðarsýslu þar sem voru aðrir hlutar kallsins. (Siglufjarðarkaupstaður frá árinu 1919). Prestssetur og kirkja voru að fornu á Siglunesi en ekki er ljóst hvenær prestssetur varð á Hvanneyri en það gerðist væntanlega snemma á 17. öld. Prestakallið er kennt við Siglufjörð frá árinu 1951. Siglufjarðarprestur þjónaði stundum Barðssókn í Hofsósprestakalli á árunum 1977-1998.

Sóknir: Siglunes (–?), Hvanneyri (?–1951) , Siglufjörður (1951–).