Grundarþing / Laugaland- prestakall ()

 

Grunngögn

ID nafnGrundarþing / Laugaland- prestakall ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Grundarþing / Laugaland
Saga 5.2.2:Grundarþing náðu (1801) yfir innri hluta Hrafnagilshrepps, frá og með Litlahóli og Dvergsstöðum að Gilsbakka og Torfum, þrjá bæi í Öngulsstaðahreppi (Rúgsstaði/Rútsstaði, Sámsstaði og Bringu) og hluta af Saurbæjarhreppi, bæi frá og með Æsustöðum að Öxnafelli (þar með Sölvadal). Árið 1884 bættust við frá Akureyrarkalli Munkaþverársókn (lög árið 1880), Kaupangssókn og 11 bæir í Hrafnagilshreppi, Reykhús ysti bær (lög árið 1884). Þá var allur Öngulsstaðahreppur kominn í Grundarþing. Saurbæjarkall sameinaðist Grundarþingum árið 1916. Árið 1952 var nafninu breytt í Laugalandsprestakall. Árið 1957 komu 7 bæir í Hrafnagilshreppi og Akureyrarprestakalli og sókn í Laugalandsprestakall og Grundarsókn, ysti bærinn var Litlihvammur. Prestar í Grundarþingum sátu, frá því seint á 19. öld, á Hrafnagili, í Saurbæ og á Laugalandi.

Sóknir: Grund, Möðruvellir í Eyjafirði, Munkaþverá (1884–), Kaupangur (1884–), Mikligarður (1916–1922), Saurbær (1916–), Hólar í Eyjafirði (1916–).