Glæsibær í Eyjafirði ()

 

Grunngögn

ID nafnGlæsibær í Eyjafirði ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Glæsibær í Eyjafirði
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:-1880
Saga 5.2.2:Í Glæsibæjarkalli voru (1801) bæirnir Hlaðir og Tréstaðir í Hörgárdal, Kræklingahlíð og Svalbarðsströnd eða ytri hluti Glæsibæjarhrepps og Svalbarðsstrandarhreppur nema Varðgjárbæir sem voru í Kaupangssókn og fóru í Öngulsstaðahrepp árið 1852. Prestakallið skiptist milli Möðruvalla- (Glæsibæjarsókn), Akureyrar- (Lögmannshlíðarsókn) og Laufásprestakalla (Svalbarðssókn) á árunum 1880–1884 (lög árið 1880) en Glæsibæjarprestur drukknaði síðla árs 1880. Möðruvallaprestur tók þá við Glæsibæjarsókn en prestar í Stærra-Árskógi og Höfða í Höfðahverfi þjónuðu Lögmannshlíðar- og Svalbarðssóknum um skeið.

Sóknir: Glæsibær (–1880), Lögmannshlíð (–1880), Svalbarð á Svalbarðsströnd (–1880).