| Saga 5.2.2: | Hofsþing náðu yfir mestan hluta Hofshrepps/Höfðastrandarhrepps hins forna, frá og með Miklabæ í Óslandshlíð að Þönglaskála og Hornbrekku á Höfðaströnd. Prestakallið var lagt niður árið 1884 (formlega árið 1891) en nágrannaprestar önnuðust þjónustu í sóknunum 18841891. Miklabæjarsókn var sameinuð Viðvíkursókn í Viðvíkurkalli (síðar Hólaprestakalli) árið 1891 en Hofssókn fór í Fellsprestakall sama ár. Það nefndist síðar Hofsósprestakall (1952-2000) og varð hluti af Hofsóss- og Hólaprestakalli í ársbyrjun 2001.
Sóknir: Hof (1891), Miklibær (1891). |