Hólar í Hjaltadal / Viðvík ()

 

Grunngögn

ID nafnHólar í Hjaltadal / Viðvík ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Hólar í Hjaltadal / Viðvík
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:-2000
Saga 5.2.2:Í Hólaprestakalli var (1801) Hólahreppur (Hjaltadalur utan frá Garðakoti og Neðraási og Kolbeinsdalur utan frá Sleitustöðum). Í ársbyrjun 1830 bættist við Viðvíkursókn frá Rípurkalli (hluti Viðvíkursveitar, frá og með Ásgeirsbrekku, Læk og Bakka). Hofsstaðasókn var lögð til Hólakalls frá Hofsstaðaþingum árið 1862 og urðu Brekkukot og Framnes í Akrahreppi innstu bæir í kallinu. Viðvík varð þá prestssetur og kallið nefndist Viðvíkurprestakall árin 1862–1951. Miklabæjarsókn í Óslandshlíð var sameinuð Viðvíkursókn árið 1891 (þjónað frá árinu 1886) og náði Viðvíkurkall þá yfir Óslandshlíð út að Miðhúsum (hluta Hofshrepps). Árið 1904 bættist Rípursókn við kallið (Rípurhreppur) við aftöku Rípurprestakalls. Hofsstaðasókn fór í Miklabæjarkall árið 1970. Kallið nefndist Hólaprestakall á árunum 1951-2000 en var sameinað Hofsósprestakalli í ársbyrjun 2001 sem Hofsóss- og Hólaprestakall en Rípursókn fór þá í Glaumbæjarprestakall.

Sóknir: Hólar (–2000), Viðvík (1830–2000), Hofsstaðir (1862–1970), Ríp (1904–2000).