Fell í Sléttuhlíð ()

 

Grunngögn

ID nafnFell í Sléttuhlíð ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Fell í Sléttuhlíð / Höfði á Höfðaströnd / Hofsós
Saga 5.2.2:Í Fellsprestakalli var (1801) ysti hluti Höfðastrandar, frá og með Bæ og Mýrarkoti, Málmey (eða Hofshreppur utanverður) og Sléttuhlíð og Hrolleifsdalur (Fellshreppur). Hofssókn féll undir Fellsprestakall frá Hofsþingum árið 1891 (þjónað frá árinu 1886). Kallið náði þá frá Gröf og Stafshóli á Höfðaströnd að Heiði í Sléttuhlíð. Prestssetur voru í Höfða á Höfðaströnd 1891-1908 og á Hofsósi frá 1908. Barðsprestakall í Fljótum var sameinað Hofsósprestakalli árið 1966 (með lögum árið 1970) en þjónað af prestum á Siglufirði og í Glaumbæ 1977-1998. Í ársbyrjun 2001 var Hólaprestakall sameinað Hofsósprestakalli sem Hofsóss- og Hólaprestakall. Það nær yfir austanverðan Skagafjörð, frá Ásgeirsbrekku, Læk og Bakka í Viðvíkursveit að Hraunum í Fljótum.

Sóknir: Fell, Höfði (–1891), Hof á Höfðaströnd (-1891), Hofsós (1954-), Barð (1966-), Knappsstaðir (1966-1978), Hólar í Hjaltadal (2001-), Viðvík (2001–).