Höskuldsstaðir á Skagaströnd / Skagaströnd ()

 

Grunngögn

ID nafnHöskuldsstaðir á Skagaströnd / Skagaströnd ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Höskuldsstaðir á Skagaströnd / Skagaströnd
Saga 5.2.2:Höskuldsstaðaprestakall náði (1801) yfir Refasveit frá bænum Enni, utanverðan Laxárdal frá og með Illugastöðum og Núpi og innanverða Skagaströnd að bæjunum Kjalarlandi og Blálandi (að Hallá) eða nokkurn hluta Engihlíðar- og Vindhælishreppa. Holtastaðasókn var lögð til Höskuldsstaðakalls við aftöku Blöndudalshólakalls árið 1881 en færð í Bergsstaðaprestakall árið 1908. Þjónusta Höskuldsstaðaprests við Holtastaðasókn var skrykkjótt fram til ársins 1891. Hofsprestakall með Hofs- og Spákonufellssóknum sameinaðist Höskuldsstaðakalli árið 1903 (formlega 1908). Eftir það náði prestakallið yfir nær allan Vindhælishrepp eða að og með Kaldrana á Skaga. Byggð á Blönduósi utan Blöndu (í landi Ennis) fór í Þingeyraklausturskall (Blönduóssókn) árið 1952. Prestakallið var kennt við Höfðakaupstað í lögum árið 1970 en nefnt Skagastrandarprestakall árið 1990. Hluta Bólstaðarhlíðarprestakalls (Bólstaðarhlíðar-, Bergsstaða- og Holtastaðasóknum) var bætt við Skagastrandarkall í byrjun árs 2001.

Sóknir: Höskuldsstaðir, Holtastaðir (1881–1908, 2001–), Spákonufell (1903–1928), Skagaströnd/Höfðasókn (1928–), Hof á Skagaströnd (1903–), Bergsstaðir (2001–), Bólstaðarhlíð (2001–).