| Saga 5.2.2: | Hofsprestakall á Skagaströnd náði (1801) yfir mestallan ytri hluta Vindhælishrepps (frá Hallá) eða frá Vindhæli að Kaldrana á Skaga. (Þrír bæir í Vindhælishreppi, Ásbúðir, Mánavík og Víkur, voru í Hvammsprestakalli í Laxárdal (Ketusókn)). Prestakallið var sameinað Höskuldsstaðaprestakalli árið 1903 (formlega árið 1908).
Sóknir: Hof (1903), Spákonufell (1903). |