Breiðabólsstaður í Vesturhópi ()

 

Grunngögn

ID nafnBreiðabólsstaður í Vesturhópi ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Breiðabólsstaður í Vesturhópi
Saga 5.2.2:Á 19. öld náði prestakallið yfir Vesturhóp, frá og með Syðriþverá, Kolþernumýri og Stóruborg að og með Hörgshóli, Hurðarbaki (Urðarbaki) og Síðu (syðsta hluta Þverárhrepps), þrjá bæi í Kirkjuhvammmshreppi (Þóreyjarnúp, Vatnshól og Vatnshorn) og mestallan Þorkelshólshrepp, að og með Tittlingastöðum (Laufási). Tjarnarprestakall á Vatnsnesi var sameinað Breiðabólsstaðarkalli árið 1970. (Prestur, sem síðastur sat á Breiðabólsstað, lét af embætti haustið 1960 og Tjarnarprestur þjónaði báðum köllum árin 1960–1989). Árið 1985 voru bæir í Þorkelshólshreppi, sem tilheyrðu Þingeyraklausturskalli, lagðir til Breiðabólsstaðarprestakalls og Víðidalstungusóknar sem jafnframt skyldi ná yfir allan Þorkelshólshrepp. Víðidalstungusókn var lögð til Melstaðarprestakalls en Hvammstangasókn þaðan aftur til Breiðabólsstaðarkalls með lögum árið 1990 og prestssetrið skyldi verða á Hvammstanga.

Sóknir: Breiðabólsstaður, Víðidalstunga (–1990), Ásgeirsá (–1569?), Tjörn á Vatnsnesi (1989–), Vesturhópshólar (1989–2014), Hvammstangi (1990–).