Blöndudalshólar í Blöndudal ()

 

Grunngögn

ID nafnBlöndudalshólar í Blöndudal ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Blöndudalshólar í Blöndudal
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:-1881
Saga 5.2.2:Blöndudalshólaprestakall náði yfir þrjá bæi í Svínavatnshreppi (Eiðsstaði, Eldjárnsstaði og Þröm, á Bugi vestan Blöndu), Blöndudal austan Blöndu (að og með Ytra-Tungukoti), Langadal, frá og með Auðólfsstöðum að og með Breiðavaði, og Laxárdal, frá og með Litla-Vatnsskarði að og með Núpsöxl, eða hluta Bólstaðarhlíðar- og Engihlíðarhreppa. Kallið var lagt niður árið 1881 sem og Blöndudalshólasókn árið 1882. Bæirnir í Svínavatnshreppi fóru í Auðkúluprestakall (Svínavatnssókn) en aðrir sóknarbæir í Bergsstaðaprestakall (Bergsstaða- og Bólstaðarhlíðarsóknir) sem nefndist Æsustaðaprestakall árin 1952-1970 og Bólstaðarhlíðarprestakall 1970-2000. Holtastaðasókn fór í Höskuldsstaðakall árið 1881 (þjónað af ýmsum prestum fram á árið 1891) en í Bergsstaðaprestakall árið 1908. Bergsstaða-, Bólstaðarhlíðar- og Holtastaðasóknir runnu inn í Skagastrandarprestakall við upphaf árs 2001.

Sóknir: Blöndudalshólar (1881), Holtastaðir (1881).

Skjalaeyðing: Svo virðist sem ýmsar bækur Blöndudalshólaprestakalls hafi glatast eftir að það var sameinað Bergsstaðaprestakalli.