Bergsstaðir í Svartárdal ()

 

Grunngögn

ID nafnBergsstaðir í Svartárdal ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Bergsstaðir í Svartárdal
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:-2000
Saga 5.2.2:Bergsstaðaprestakall náði (1801) yfir Svartárdal og bæina Bólstaðarhlíð og Æsustaði í Langadal, bæi á Skörðum (frá Vatnshlíð að Kálfárdal) og í Laxárdal frá Þverárdal út að Mörk. Allir bæirnir voru í Bólstaðarhlíðarhreppi. Hluta Blöndudalshólakalls (Blöndudalshólasókn) var aukið við Bergsstaðakall árið 1881 en sóknin lögð niður ári síðar og bæirnir í Svínavatnshreppi fóru í Auðkúluprestakall (Svínavatnssókn). Holtastaðasókn bættist við frá Höskuldsstaðakalli árið 1908 og prestakallið náði þá yfir Blöndudal austan Blöndu, Svartárdal, Langadal út að Breiðavaði, nokkra bæi á Skörðum og Laxárdal út að Núpsöxl. Auðkúluprestakall (Auðkúlu- og Svínavatnssóknir) var sameinað Bergsstaðakalli árið 1951 sem kallaðist Æsustaðaprestakall á árunum 1952–1970, Bólstaðarhlíðarprestakall 1970–2000 en var lagt niður í árslok 2000. Bergsstaða-, Bólstaðarhlíðar- og Holtastaðasóknir fóru í Skagastrandarprestakall en Auðkúlu- og Svínavatnssóknir í Þingeyraklausturskall. Prestar munu ekki hafa setið á Bergsstöðum frá árinu 1921.

Sóknir: Bergsstaðir (–2000), Bólstaðarhlíð (–2000), Blöndudalshólar (1881–1882), Holtastaðir (1908–2000), Auðkúla (1951–2000), Svínavatn (1951–2000).