| Saga 5.2.2: | Auðkúluprestakall náði yfir Svínavatnshrepp (Svínadal og Uppása og vestanverðan Blöndudal að Guðlaugsstöðum) nema bæina á Bug (Eiðsstaði, Eldjárnsstaði og Þröm) sem lagðir voru til Auðkúlukalls og Svínavatnssóknar árið 1882 við afnám Blöndudalshólaprestakalls og sóknar. Auðkúlukall var sameinað Bergsstaðaprestakalli árið 1951 sem fékk heitið Æsustaðaprestakall árið 1952 og síðar Bólstaðarhlíðarprestakall árið 1970. Í ársbyrjun 2001 skiptist Bólstaðarhlíðarprestakalli milli Þingeyraklausturs- og Skagastrandarprestakalla. Fóru þá Auðkúlu- og Svínavatnssókn undir Þingeyraklaustursprestakall.
Sóknir: Auðkúla (1951), Svínavatn (1951). |