| Saga 5.2.2: | Í Flateyjarþingum/Flateyjarprestakalli voru Flateyjarhreppur (Eyjahreppur) og Múlahreppur mestallur (frá Svínanesi að Litlanesi). Flateyjarprestakall var sameinað Reykhólaprestakalli árið 1970 en Reykhólaprestur hafði löngum þjónað kallinu frá árinu 1956. (Skálmarnesmúlasókn hefur verið í eyði síðan árið 1975 og var sameinuð Gufudalssókn árið 1990).
Sóknir: Flatey (-1970), Skálmarnesmúli/Múli (-1970). |