Hvammur í Hvammssveit ()

 

Grunngögn

ID nafnHvammur í Hvammssveit ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Hvammur í Hvammssveit
Saga 5.2.2:Hvammsprestakall náði yfir Hvammssveit (frá Glerárskógum) og Fellsströnd út að Arnarbæli og Víghólsstöðum. Kallið var lagt niður árið 1881, Hvamms- og Ásgarðssóknir fóru undir Hjarðarholtsprestakall en Staðarfellssókn var þjónað úr Skarðsþingum árin 1882-1890. Hvammsprestakall var endurreist árið 1890. (Hvamms- og Ásgarðssóknir voru sameinaðar árið 1884). Hluti Skarðsþinga (Dagverðarnessókn) bættist við Hvammsprestakall árið 1908 (lög árið 1907). Þá náði prestakallið að Ballará á Skarðsströnd. Hjarðarholtssókn kom í Hvammskall frá Suðurdalaþingum árið 1952 en fór til nýs Hjarðarholtskalls árið 1970. Staðarhólsþing bættust við Hvammsprestakall árið 1970. Hvammskall var sameinað Hjarðarholtsprestakalli árið 2005 undir heitinu Hjarðarholts- og Hvammsprestakall sem kallast Dalaprestakall frá árinu 2007.

Sóknir: Hvammur (-1881, 1890-2005), Ásgarður (-1881), Sælingsdalstunga (-1853), Staðarfell (1634-1881, 1890-2005), Dagverðarnes (1908-2005), Hjarðarholt (1952-1970), Skarð (1970-2007), Staðarhóll (1970-2005).