| Saga 5.2.2: | Í Hjarðarholtskalli var Laxárdalshreppur allur (frá Lækjarskógi og Þorbergsstöðum að Ljárskógum). Árið 1881 var Hvammsprestakall lagt niður og Hvamms- og Ásgarðssóknir settar í Hjarðarholtsprestakall. Hvammssókn (sameinaðar Hvamms- og Ásgarðssóknir) fór til endurreists Hvammsprestakalls árið 1890. Hjarðarholtsprestakall var lagt niður árið 1920 (lög árið 1907) og Hjarðarholtssókn fór í Suðurdalaþing en í Hvammsprestakall árið 1952. Nafnið Hjarðarholtsprestakall var endurvakið árið 1970 þegar Hjarðarholtssókn fór til Kvennabrekkukalls úr Hvammsprestakalli. Hjarðarholtsprestakall var sameinað Hvammsprestakalli árið 2005 undir heitinu Hjarðarholts- og Hvammsprestakall sem nefnist Dalaprestakall frá árinu 2007.
Sóknir: Hjarðarholt (-1920), Ásgarður (1881-1884), Hvammur (1881-1890). |