| Saga 5.2.2: | Breiðuvíkurþing náðu yfir Breiðuvíkurhrepp (frá Öxl í Breiðuvík að Görðum í Beruvík) nema bæina Saxahól og Öndverðarnes. Kallinu var þjónað frá Staðarstað (Knörr 1869-1878, Laugarbrekka 1869-1875) og úr Nesþingum (Einarslón 1869-1878, Laugarbrekka 1875-1878). Kallinu var skipt milli Staðarstaðarprestakalls (Knarrarsókn) og Nesþinga (Laugarbrekkusókn) árið 1878 og Knarrarsókn sameinuð Búðasókn en Einarslónssókn að hluta bætt við Laugarbrekkusókn (jarðirnar Malarrif og Einarslón með hjáleigum) en hinn hlutinn (Hólahólar, Garðar og Hella með hjáleigum) fór í Ingjaldshólssókn í Nesþingum. Laugarbrekkusókn/Hellnasókn fór í Staðarstaðarkall árið 1922 og aftur í ársbyrjun 2002 en var í Ingjaldshólskalli 1993-2001.
Sóknir: Knörr (-1878), Laugarbrekka (1563-1878), Einarslón (1563-1878).). |