| Saga 5.2.2: | Breiðabólsstaðarkall náði yfir Skógarströnd/Skógarstrandarhrepp (frá Narfeyri að Hólmlátri og nokkur eyjabýli) og Álftafjarðarbotn í Helgafellssveit (bæina Úlfarsfell, Örlygsstaði og Kársstaði). Síðasti presturinn lést árið 1960. Eftir það var Breiðabólsstaðarprestakalli þjónað af ýmsum prestum uns það var sameinað Stykkishólmsprestakalli árið 1970.
Sóknir: Breiðabólsstaður (1563-1970), Narfeyri (-1970). |