| Saga 5.2.2: | Hítarnes var prestssetur í Hítarnesþingum sem náðu (1801) yfir neðri hluta Hraunhrepps (efstu bæir Ánastaðir, Hamrar, Skíðsholt og Einholt) og Kolbeinsstaðahrepp nema bæina undir Fagraskógarfjalli (frá Ytri-Skógum að Hróbjargarstöðum). Hítarnesþing voru lögð niður árið 1892 (lög frá 1880) og hlutuð milli Staðarhraunsprestakalls (Hjörseyjar- og Akrasóknir) og Miklaholtsprestakalls (Kolbeinsstaðasókn). Akrasókn fór undir Borgarprestakall árið 1965 (lög frá 1970) og Kolbeinsstaðasókn undir Staðarstaðarkall árið 1993.
Sóknir: Hjörsey (-1892), Akrar (-1892), Krossholt (-1882), Kolbeinsstaðir (1645-1892). |