| Saga 5.2.2: | Borg varð að prestssetri árið 1849 og kallið kennt við þann bæ síðan. Í Borgarþingum voru árið 1801 Borgarhreppur neðanverður, frá Ferjukoti og Stangarholti að ofanverðu og Álftaneshreppur neðan til (efstu bæir Langárfoss, Urriðaá, Þverholt og Álftárbakki). Álftártungusókn kom í Borgarkall frá Staðarhraunsprestakalli árið 1892 (lög 1880). Þá urðu allur Álftaneshreppur og þrjár jarðir í Hraunhreppi (Hrafnkelsstaðir, Álftá og Saurar) í Borgarprestakalli. Árið 1965 bættist Akrasókn við þegar Staðarhraunsprestakall lagðist niður (lög frá árinu 1970). Eftir það var stærsti hluti Hraunhrepps í Borgarprestakalli (efstu bæir Álftá, Einholt og Skiphylur).
Sóknir: Borg, Álftanes, Álftártunga (1892-), Borgarnes (1940-), Akrar (1965-). |