| Saga 5.2.2: | Í Hestþingum voru (1801) Andakílshreppur (Andakíll, Bæjarsveit og tveir bæir í Flókadal), neðanverður Skorradalur (frá og með Vatnsenda og Stóru-Drageyri að ofan) og bærinn Stafholtsey sem var í Stafholtstungnahreppi en hafði farið í Bæjarsókn úr Stafholtsprestakalli árið 1685. Lundarprestakall var sameinað Hestþingum árið 1932 (lög frá árinu 1907). Urðu þá í Hestþingum Andakíls-, Skorradals- og Lundarreykjadalshreppar. Frá árinu 1952 er kallið nefnt Hvanneyrarprestakall. Grafardalur í Fitjasókn var færður úr kallinu í Saurbæjarprestakall árið 1972.
Sóknir: Hvanneyri, Bær, Lundur (1932-), Fitjar (1932-). |