| Saga 5.2.2: | Holtaþing náðu yfir efri hluta Holta og Snjallsteinshöfða á Landi með hjáleigunni. Efstu bæir voru Snjallsteinshöfði, Kaldakinn, Mykjunes, Skammbeinsstaðir, Lækur og Akbrautarholt, neðstir Árbæjarhjáleiga, Syðri-Rauðalækur, Arnkötlustaðir, Þjóðólfshagi, Gíslholt og Kambur. Prestakallið varð hluti af Landþingum/Fellsmúlaprestakalli (Marteinstungu- og Hagasóknir) árið 1904 og Kálfholts-/Kirkjuhvolsprestakalli (Árbæjarsókn) 19041998. Allar fornar Holtaþingasóknir eru í Fellsmúlaprestakalli frá ársbyrjun 1999.
Sóknir: Marteinstunga (1904), Hagi (1904), Árbær (1904). |