Holt undir Eyjafjöllum ()

 

Grunngögn

ID nafnHolt undir Eyjafjöllum ()
 

Upprunaupplýsingar

Annað heiti aðlagað 5.1.4:Holt undir Eyjafjöllum
Stofnár/fæðingardagur 5.2.1:-2011
Saga 5.2.2:Holtsprestakall náði yfir Vestur-Eyjafjöll, eystri hlutann, frá og með Varmahlíð að og með Lambhúshóli, Vesturholtum, Nýjabæ og Sauðhúsvelli. Dalsþing voru sameinuð Holtskalli árið 1880 (í raun árið 1867) svo og Eyvindarhólakall árið 1908 (í raun árið 1904). Bergþórshvolsprestakall (áður Landeyjaþing) var lagt til Holtskalls árið 1999. Holtsprestakall skiptist milli Víkurprestakalls (Eyvindarhóla-, Ásólfsskála- og Stóradalssóknir) og Breiðabólsstaðarkalls (Kross- og Akureyjarsóknir) árið 2011.

Sóknir: Holt (–1888), Ásólfsskáli (1889–2011), Stóridalur (1867–2011), Eyvindarhólar (1904–2011), Kross (1999–2011), Akurey (1999–2011).

Heimild: Björk Ingimundardóttir. Prestaköll og sóknir á Íslandi.