| Saga 5.2.2: | Í Garðaprestakalli var (1801) Álftaneshreppur, frá Lónakoti að Arnarnesi. Hreppnum var skipt í Garða- og Bessastaðahreppa árið 1878. Garðaprestakall varð að Hafnarfjarðarprestakalli árið 1914. Kálfatjarnarsókn kom í Hafnarfjarðarprestakall árið 1919 við aftöku Kálfatjarnarprestakalls. Garðaprestakall var endurreist í árslok 1965 með Garða-, Bessastaða- og Kálfatjarnarsóknum, Bessastaðasókn var þó þjónað af Hafnarfjarðarpresti til ársloka 1976. Hafnarfjarðarprestakalli var skipt í Hafnarfjarðar- og Víðistaðaprestaköll í ársbyrjun 1977. Hið nýja Hafnarfjarðarprestakall skiptist í Hafnarfjarðar- og Valla-/Tjarnaprestaköll árið 2002. Fríkirkjusöfnuður var stofnaður í Hafnarfirði árið 1913 og eru bækur hans einnig birtar hér.
Sóknir: Garðar (1914), Hafnarfjörður (1914), Bessastaðir (1976), Kálfatjörn (19191965), Víðistaðasókn (1977), Vallasókn (2001-2002). |