| Saga 5.2.2: | Í byrjun 19. aldar náði Hrunaprestakall yfir miðhluta Hrunamannahrepps (Ytrahrepps), ofan frá Bryðjuholti, Berghyl, Kluftum, Kaldbaki og Hrunakróki niður að Sólheimum, Hellisholtum, Efra-Langholtsbæjum og Hvítárholti. Reykjadalsprestakall var sameinað Hrunakalli árið 1819 og Reykjadalssókn Hrunasókn um leið. Hluti Stóranúpsprestakalls var lagður til Hrunakalls árið 1974 eða Hrunamannahreppshluti Hrepphólasóknar. Stóranúpsprestakalli var bætt við Hrunakall í ársbyrjun 2010.
Sóknir: Hruni, Tungufell (18191987), Hrepphólar (1974), Stórinúpur (2010), Ólafsvellir (2010). |