| Saga 5.2.2: | Hrepphólaprestakall náði yfir neðri hluta Gnúpverjahrepps (efstu bæir Háholt, Stóra- og Minnahof) og neðri hluta Hrunamannahrepps, frá og með Unnarholtsbæjum, Miðfellsbæjum og Galtafelli að ofanverðu. Það var sameinað Stóranúpsprestakalli árið 1880. Hrepphólasókn var skipt árið 1974, Hrunamannahreppshlutinn varð að Hrepphólasókn í Hrunaprestakalli, Gnúpverjahreppshlutinn fór í Stóranúpssókn í Stóranúpskalli. Mörk urðu um Stóru-Laxá. Stóranúpskall sameinaðist Hrunaprestakalli í ársbyrjun 2010.
Sóknir: Hrepphólar (1880), Stórahof (1799). |